GKG

Æfingadagbók

GKG Golfakademía

Til baka

Persónuvernd

Æfingadagbókin er notuð af GKG til að halda utan um mætingu og æfingar barna og unglinga í golfi. Hér er sagt frá því hvaða upplýsingar eru geymdar og hvers vegna.

Hvað er geymt

  • Nafn og netfang (fyrir þá sem eru með aðgang).
  • Hópar, mæting á æfingar og skráðar æfingar (tegund, dagsetning, lengd, athugasemd).
  • Framgangur í þrepum og hver staðfesti hverja þraut.
  • GolfBox-númer, til að skrá mætingu á spjaldtölvu í golfskálanum og tengja úrslit úr mótum. Kennitölur eru ekki geymdar.
  • Úrslit úr mótum á GSÍ mótaröðunum, sótt úr GolfBox þar sem þau eru birt opinberlega: skor í hverjum hring og forgjöf í mótinu.
  • Ef kveikt er á tilkynningum: tæknilegt auðkenni tækisins til að senda áminningar.

Hver sér upplýsingarnar

  • Þjálfarar sjá mætingu, æfingar og tölfræði leikmanna.
  • Leikmenn sjá sínar eigin upplýsingar, þar á meðal eigin úrslit og markmið hópsins. Allir leikmenn sjá nöfn og framgang annarra í þrepum.
  • Upplýsingarnar eru ekki seldar né afhentar öðrum.

Hvar og hve lengi

  • Gögnin eru geymd hjá Supabase á netþjónum á Írlandi og appið keyrir hjá Vercel í Dublin, hvort tveggja innan Evrópska efnahagssvæðisins.
  • Gögnin eru geymd á meðan aðgangurinn er virkur. Þegar aðgangi er eytt er öllum upplýsingum um viðkomandi eytt.

Réttindi þín

  • Þú (eða forráðamaður) getur beðið um að sjá, leiðrétta eða eyða upplýsingunum. Hafðu samband við þjálfara eða umsjónarmann appsins.